Jæja gott fólk partýið var á laugardaginn og það var mega fjör hér á bæ...... grillað brjálað gott kjöt frá "nonna litla" kartöflusalat með og fullt af sósum uuummmmm en það er nú hellings afgangur sem að var bara hent í frysti þannig að við eigum grillkjöt út árið

vei vei vei ég elska grill mat......
Svo á sunnudaginn kom hún litla snúlla mín heim úr bústað með ömmu og afa svona líka fárveik.... Ég hélt að það væri bara svona þetta vanalega hitii og hálsbólga. Svo þegar ég kom úr sturtu og leit rétt inn á barnið þá lá hún bara þarna í einhverjum brjáluðum krömpum ooooooojjjjjj ég hef aldrei á ævinni verið jafn hrædd. Hringdi á læknavaktina bara svona til að fá eh svör hvað gæti mögulega verið í gangi og símagella sagði okkur að gefa henni bara stíl til að sjá hvort að hitinn myndi nú ekki lækka. Við gerum það en hún var nú bara með 38 gráður svo klukkutíma síðar kemur annar svona krampi og jesús marta aftur jafn ógeðslega hrædd, það var eins og barnið væri einhverstaðar annarstaðar augasteinarnir stækkuðu útí hið endanlega þannig að það var eins og hún væri með svört augu og svo starði hún bara út í loftið og kipptist öll til........ úfffff þannig að ég hringdi aftur á læknavaktina og sagðist vilja fá lækni strax. Ég hringi nú ekki í lækni af tilefnislausu og veit yfirleitt hvað er að barninu mínu en þetta var eins og í eh hryllingsmynd........................ Kom svo þessi líka frábæra læknakona svona amma rosalega næs og hún sendi okkur bara beint uppá bráðavakt á barnaspítalanum þar sem að það var farið yfir alla söguna aftur og aftur og svo tekinn púls, blóðþrýstingur og súrefnismettun og vigtun og já bara allur pakkinn.......... fórum í lungnamyndatöku en ekkert kom þar út.... svo byrjar mín að kasta upp yfir alla læknastofuna mjög hresst það. hehe...... Svo kom að því að finn æð til að taka blóðprufu þar sem að bráðarbirðar blóðprufan(stungið í puttan) sýndi eh sýkingu í blóðinu og jesús það er búið að stinga milljón göt á barnið þar sem að engar æðar er að finna í barninu, en tókst fyrir rest og hún var bara látinn fara heim með æðalegg í hendinni rosa fínt spelka undir höndina og fullt fullt af sárbindum til að þett myndi nú haldast, fékk hún svo sýklalyf í æð og þá byrjaði mín að æla aftur. Á mánudeginum fórum við aftur uppá spító og fengum meira sýklalyf og mín ældi og ældi alla stöfuna út. Eftir 3.tíma bið vorum við bara send heim og mæta aftur á þriðjudag til að fá meira sýkla lyf þar sem að hún hélt engu niðri þá þýddi nú ekkert að vera að gefa henni mixtúru. Held að við séum búin að hitta allt læknaliðið þarna á barnaspítalanum alltaf kom nýtt par af lækni og hjúkku að tala við okkur og eh vissi enginn neitt þannig að við þurftum alltaf að vera að útskýra af hverju við værum þarna iss piss....
En svo mætum við á þriðjudag og þá er bara tekið á móti okkur eins og við séum að mæta í fyrsta skipti, við reyndum nú að útskýra það að við værum nú bara að koma til að fá lyf í æð "nú jájá tilhvers" come on helduru að ég mæti hingað bara af því bara ó nei ó nei......... En svo þegar fólk var búið að fara fram og lesa skýrsluna hennar þá lagaðist þetta nú allt saman, fengum líka þennan frábæra lækni (fyrsti læknirinn sem að leyfði okkur að fylgjas með hvað væri í gangi) Hann rétt leit á hana og henti okkur inn á eh stóra stofu og skellti vökva í barnið (í æð) hún var að þorna upp!!!!!!!!!!!! Eruð þið að pæla engum datt í huga að kannski þurfit að gera eh annað en að dæla í hana syklalyfjum........... Eftir svona 20 mín var barnið eins og nýtt hún var allt í einu orðinn svöng og til í allt!!!!!!! þannig að æðaleggurinn var tekinn og skrifað uppá mixtúru og við send heim í ábyrgð heheheheh jájá svon stikklað á stóru hér.........
Svo eru fleirri fréttir læt þær flakka eftir nokkra daga..................... Þarf að láta nokkra vita áður en ég blogga um það

KV PiNkY