bleikur dagur

bleiku skýin

07.03.2008 13:31:53 / nadía

London beibííííííííííí 8)

jæja þá erum við komin frá London og ómy gad hvað það var gaman.......................
Er að spá í að flytja þangað!!!!!!!!!!!!! eða nei kannski ekki alla vega að fara þangað einu sinni á ári..... En ferðin byrjaði nú ekki svo vel.

Þegar við mættum á flugvöllinn þá áttum við að skrá okkur inn í svona kassa. semsagt þurftum ekki að standa í röð. En neinei þá var Ingi Valur vitlaust feðraður hann var Óskarsson í stað Grétarsson. Þannig að það þurfti að fara og breyta nafninu svo að hann yrði nú ekki handtekin þarna úti. hahahah hefði verið fyndið samt. Það tók þvílíkan tíma og fullt fullt af peningum. Svo þegar það var búið var farið í það að tékka gaurinn inn en þá var breytingin ekki komin í kerfið þannig að við þurftum að bíða og bíða þannig að ekki var mikill tími til að eyða í flugstöðinni. En náðum nú kaffibolla. EEEEEEENNNNNNNN í tékkinninu þá kom það í ljós að það voru engin sæti nálægt okkur hinum hahah þannig að greyið Ingi sat lengst frá okkur, getið ímyndað ykkur frústið í einum gæja hahahahahahahha .......Fyrsta utanlandsferðin okkar saman og við situm í sitthvoru póstnúmerinu. Ég lenti hjá eh eldri hjónum það var hresst ég svaf bara allan tíman, nennti ekki einu sinni að fá morgunmat.
Lentum svo á Heathrow í svona líka frábæru veðri, við íslendingarnir auðvitað full mikið klædd. Fórum svo með rútu á hótelið sem að var staðsett við Oxfordstreed, heitir Cumberland, ó my gad hvað þetta var hrikalega flott hótel.......... eða allavega andyrið og baðherbergin á herbergjunum. Svo var flottur bara á resturantinu sem að var í lobbýinu. Þau gerðu meira að segja alveg ágætis kaffi miðað við hráefni.

Ballið heppnaðist bara svona rosalega vel og allir ánægðir í intrum :)

Við röltum alveg helling á oxfordstreedinu og EYDDUM milljón milljón peningum hahhahaaha fann nýju uppáhaldsbúðina mína............ ekki það að hún sé eitthvað mega flott en hún er hrykalega ódýr það eru flott undirföt og bikiní þarna og barnafötin eru æææððððiiiiii við erum að tala um það að við kauptum fullt fullt af fötum á Nadíu........................... þarf að gefa henni þau í skömmtum til að barnið fríki ekki út hahhahahhaha frekar klikkuð mamma. Keypti mér líka 8 eða 10 pör af skóm og 2 töskur og fullt fullt af strengjum og flottum undirfötum..................

Svo komum við heim í lasið barn og skemmtileg heit. En það er nú allt í lagi.

7.dagar í að mamma verði farin og 5.dagar í bolabítinn minn, ætli hún sé ekki sveitt akkúrat núna að bera draslið sitt útí gám hahahahahah myndi hjálpa þér en næ ekki í tíma þar sem að það er tímamismunur og langt flug hahahahahah hjálpa þér bara að bera inn hérna,,,,,,,,


until next  æm ádí

» 4 hafa sagt sína skoðun

27.02.2008 10:32:59 / nadía

kynning búin

jæja þá!!!! kynningin búin og ég verslaði fyrir milljón og eina.
Ekki á morgunn ekki hinn heldur hinn þá fer ég til London.......... ó my gad hvað ég hlakka því líkt mikið til :d

Þessa dagana er búið að vera nóg að gera, er að hjálpa Bjarma að undirbúa sig fyrir innanhússmót (kaffibarþjóna mót) og það fer allur auka tími í það. En það klárast nú í kvöld þar sem að hann stígur á stokk í kvöld. Það er enginn press....... Það er bara eins gott að hann komist áfram á íslandsmót. Úff það er svo mikið af íslandsmótum þessa dagana. mjólkurlist, í vínanda, fagsmökkun, kaffibarþjónakeppni.  Svo verður heimsmeistaramótið í köben þar sem að ég ætlaði að fara og hitta Frunsuna mína en nei nei hún verður komin to æsland..... en það er allt í lagi. Við stöllur skellum okkur bara til útlanda síðar????? RIGHT????

Ó my gad!!!!!!!! hvað haldið þið að mamma og Nadía hafi talað mig inná.???????? jájá barnið er komið með stutt hár!!!!!!!!!! við erum að tala um sjokk dauðans þegar ég var búin með herlegheitin.... Minns búin að hafa þvílíkt fyrir því að láta aumingjans barnið safna topp og svo kviss bæng eins og hendi er veifað þá er toppurinn orðin styttri en allt stutt og hárið upp fyrir axlir með milljón milljón styttur :( hvað erum við að tala um..........
Nadía er búin að vera að suða um stutt hár síðan ég kom úr  klippingu "mamma við verðum að vera í stíl" já sæll eigum við að ræða það eitthvað????? Nei við verðum ekki að vera í stíl unga dama!!!!!
En svo varð mamman lin og hlýddi ömmunni. Ég er ekki alveg búin að ná þessu. En samt voða fínt :d

14.dagar í bolabítinn minn og 16.dagar í að mútter kveður þennan hluta af landinu. Svo fáum við íbúðina okkar einhvern tíman um það leyti :) þá verður málað skipt um hurðar og allt baðherbergið :) :) :) :) hlakka svo mikið til.

Fengum hjúmangus sjónvarp í gær!!!!!!!!! við erum að tala um 50 kíló af sjónvarpi. ég er aðvitað svo mikill massi að ég bar það upp heima.......... ok ok ekki alveg ein ;)

jæja minns farin að vinna meira.... L8ter gæs. :klikk:

» 5 hafa sagt sína skoðun

21.02.2008 12:47:42 / nadía

volare kynning í kvöld

já hún mútta tútta er með kynningu í kvöld á aloe-vera vörum jej jej fullt fullt að éta og skoða fullt fullt af fínum vörum. Þarf að kaupa hellingz.
Þannig að það verður brjálað að gera hjá mér strax eftir vinnu!!! þarf að búa til brauðrétt og salsasósu rétt uuuuummmmm hlakka ekkert smá til að éta éta éta.....

Júróvísjón á laugardaginn og ég vissi ekki einu sinni af því. Hvar hef ég verið???????
Hún Lilja er alveg að tapa sér yfir þessu öllu saman hér á skrifstofunni og ég hef varla heyrt eitt einasta lag. Held ekki með neinum :) nema mér.

London styttist ó já ó já...... fór í gær að sækja um vegabréf. þar sem að mitt er algjörlega horfið, fór í fyrradag og rústaði geymslunni hjá mér fór í flest alla kassa til að leita að því, ég sem að var svo viss um að ég vissi nákvæmlega hvar það væri. EN nei nei ekkert vegabréf á kanntinum...... Þannig að ég þarf nýtt og guð minn góður hvað það er hræðileg mynd sem að gaurinn tók. Vildi ekki að hann tæki fleirri þar sem að ég var búin að neita milljlón myndum hjá honum... hahhahahah frekar erfið gella. Hefði kannski átta að mála mig og greiða mér og taka mig aðeins til áður en að ég mætti á svæðið??? hahah spurning um það næst.

Ég hef í rauninni ekkert að segja. Þarf að finna mér eitthvað subject til að skifa, og bölfa um.

                    minns kveður að sinni........

» 3 hafa sagt sína skoðun

19.02.2008 13:53:01 / nadía

KLÓST

jæja þá er búið að kaupa hluta af klósetti, vantar held ég bara salernisskálina?? er samt ekki mjög viss með það :p eigum flísar og vask og þá á bara eftir að kaupa mósaík utan um klósettkassan og veggflísar (utan um veggina ) just in case að þið föttuðuð það ekki.hahahah.
já við erum semsagt að fara að taka alla  íbúðina í gegn. Fáum hana bara svona sirka þegar mamma er flutt, því þá geta strákarnir flutt inná okkur eða við inná þá. fer allt eftir því hvernig er horft á það...... Svo ætlum við að kaupa sófa og heimabíó og borðstofuborð og stóla.... Allar peninga gjafir vel þegnar hahahahhahaha NEI er ekki í lagi við erum milljóamæringar á eftir launum. :)
annars voða rólegt hérna í kringum mig, er í vinnunni reyndar. þannig að ég ætla ekki að hafa þetta lengra að sinni. Bara láta vita að ég er aktív í þessu öllu saman.
Svo er það bara húðhreinsun og bólukreistur í kvöld og svo til að setja punktinn yfir i-ið þá verðu maski og gúrkur á augun líka... allt heima hjá Jan..................
Svo er brunch heima hjá "okkur" (Jan) á laugardaginn klukkan 10 ef þið viljið vera með, ætlum að steikja egg og spæla beikon skera pönnukökur og steikja ávexti þetta verður mega gaman :) :) :) :) :)

» 2 hafa sagt sína skoðun

16.02.2008 23:21:35 / nadía

Fagsmökkun í dag

sælt veri fólkið
við vorum að koma heim af stylnum fengum mergjað kjúklingasalat.... ég, mamma og Ingi... hann fékk sér reyndar heví hambó...... en hvað um það svo fórum við að sækja pabba og ömmu og afa þau voru úti að borðá á holtinu og ó my gad hvað það stóðst ekki væntingar!!!!!!!!!!!!!!! Enginn sáttur þar á ferð, og monínga upphæðin sem að fór í það að éta EKKERT guð minn góður..... alla vega þá mæla þau ekki með þessum "klassa stað"

Nadía fór uppí sumarbústað með ömmu og afa sínum og hefur það pottþétt eins og á 5 stjörnu hóteli....... Vöknuðum snemma og henni hent í ömmu og afa. Ingi fór að vinna og ég fór í fagsmökkunar keppni sem að hann Jan skráði mig í :evil: ekki sátt við hann.... en svo kom á daginn að þetta var bara svona líka mega gaman. Þetta er sem sagt svona þríhyrningssmökkun. þá eru 3 bollar settir í þríhyrning og 2 af þeim eru eins og 1 öðruvísi. og maður þarf að finna út hver er öðruvísi....... ég lenti í 5.sæti sem að fínt miðað við að ég hef ekki gert svona smökkun áður. fyrstu 3.sæti saman standa af fólki sem að vinnur við þetta dagsdaglega þannig að ég get bara verið mjög sátt með þetta. Pínu stress en mjög gaman að hafa farið í þetta, Nú er bara að fara að æfa sig fyrir næsta ár, því að þetta er ekkert annað en smá blekking á bragðlaukana. ;) hægt að blekkja tunguna lengi lengi á meðan maður borðar ekkert á undan.............

Jæja hefur annars voða lítið verið á seiði hér á bæ..... fórum reyndar svo til Jan að spila trivíal og mamma vann skil ekki svona, maður er að bjóða fólki með sér í að spila og svo rústar það manni svona all svakalega.............. Jan ætlar að brjóta hnéskeljarnar á henni........................... hhahahahaha mega hresst það.

Hey já gleymdi einu, fórum út að éta á vegamót á fimmtudaginn (Valentínusardagurinn.) ekki það að við höfum verið að halda uppá hann ó nei ó nei. Kristín átti nebblast afmæli og ákvað að raka öllum saman út að éta. Það var ekkert smá gott og hressandi, mikið hlegið af gömlum tímum og étið yfir sig af svona líka fínum mat......... Fékk mér eitt hvítvínsglas og ég shiturinn titturinn hvað ég varð hrikalega þreytt... jesus bobby martan dottin úr æfingu við þetta......

Aný hú þá er ég farin að hlusta á Inga taka upp lag hahhaha hann er að deyja hérna hann er svo feiminn við að syngja svona heima við hahahhahahahahha Hann er stressaðari hér heldur en fyrir framan milljón ókunnuga.....................

Later..... minni svo á smá könnun hér vinstrameginn......... og Kvitta ef að einhver er enn að kíkja hérna inná. Skil svo sem alveg ef að einhver er ekki að kíkja hér þar sem að þessi bloggari er nú ekkert svakalega duglegur að bloggast. En margur á sér viðreisnarvon hehehehehehhehe
Góða nótt sugerpæsssssssss

» 3 hafa sagt sína skoðun

15.02.2008 11:36:29 / nadía

ji það er bara búið að breyta hérna í vefstjórn......

vá þetta er rosalegt hér er maður í sakleysi sínu að fara að skrifa eitthvað uppbyggjandi og kviss bang það er allt nýtt hér inni....... enn spennó Hrund það er ekkert verið að segja manni frá þessu :o

Annars hef ég svo sem ekkert að tala um......
Fór í klippingu og litun um daginn. og viti menn ég klippti allt hárið af mér, var alveg að ná að fara að skeina mig með herlegheitunum allur litur var að verða komin úr hárinu þá byrja púkarnir á öxlunum að rífast og ég er ekki viss um hvor vann en anyways þá klippti ég mig stutt og fór útí sumarstílinn og litaði allt heila dótið ljóst...... nú þarf ég bara smá tan og er reddý fyrir allt.

Svo er ég að fara til London 1.mars....... vei vei vei hef sko aldrei farið til london hlakka ekkert smá til að komast aðeins í burtu héðan..........
Þarf reyndar bara að finna vegabréf...... veit svona sirka hvar það er ennnnnnn það þýðir að ég þarf að rusla öllu út úr geymslunni hjá mér og rusla svo öllu aftur inn.... ekki það að það verði leiðinlegt að sjá allt dótið mitt aftur það er bara ÉG ER SVO LÖT TÝPA

jæja nú ætla ég að fara að vinna meira þetta er nóg í dag ;)

» 3 hafa sagt sína skoðun

29.01.2008 17:33:11 / nadía

Nei djók ég er ekkert hætt

hæhæ pípól

ég er nú ekki alveg hætt að blogga. hef barasta voðalega lítinn tíma til þess. þar sem að það er fullt að gera í vinnunni og ég er ekki með tölvuna á mér heima vi. núna sit ég heima hjá mömmu og reyni að sýna smá lit........

Er samt ekki alveg viss um hvernig mér eigi eftir að ganga með þetta stans blogg but i will do my best.............................. Ég hef alltaf fullt að blogga um þegar ég er ekki við tölvu svo þegar kemur að þessu þá hef ég ekkert að segja.

 

Eníhú ég held áfram að reyna


» 2 hafa sagt sína skoðun

24.11.2007 11:32:21 / nadía

hætt

jæja hef ákveðið að prufa nýja síðu þar sem að þessi er ekki að virka sem skildi. Blogg færslur vistast ekki og detta út eftir að þær hafa komið inn..... http://www.123.is/mrp tékkið á því

» 3 hafa sagt sína skoðun

11.10.2007 00:08:13 / nadía

Póker night

Erum að spila póker hérna heima. Ég er úr bara svona eins og alltaf :( me not clever i guess. En það er allt í lagi :) Var að setja upp kringlukast áðan og gekk svona líka mjög vel hjá mér og Kata herklein hjálpaði mér. Ferðamál á 20% afslætti mokkakönnur Brikka á 30%afsl. og El salvador og Súmatra á 25% afslætti og er ég barasta sátt við þetta allt saman :) Fékk í gær email með opnunartímum kringlunnar í des!!!!!!!!!!!!! já gott fólk þið getið verslað til 22:00 frá 6.des held reyndar að með þessu áframhaldi verður opið allan des eftir örfá ár. 8.nóv verður allt jólaskraut komið upp í kringlunni og mæli ég með því að vera ekkert að mæta í kringluna. Ekki nema þið viljið algjörlega eiðileggja jólin ykkar !!!!!! Ég hef að minnsta kosti ekki átt jól í 7 ár þar sem að stemmarinn er alveg búin þegar það kemur að því að undirbúa jólin eða jólamatinn :( hef ekkert að segja í dag heldur until nexyt kv PiNkY

» 8 hafa sagt sína skoðun

09.10.2007 17:15:16 / nadía

:(

Hvað eru allir á túr í dag????? Nei bara spyr þetta er búin að vera rosalegur dagur!!!! Hvað með fullt tungl??? Þarf eiginlega að tékka á þessu öllu saman. Dónaskapurinn og yfirgangurinn og frekjan í dag ætlaði öllu um koll að keyra. Svona í alvörunni ef að þú ert í vondu skapi eða líður eh illa ekki láta það bitna á næsta afgreiðslu manni !!!! Í alvörunni þó að þú hafir fengið leiðinda reikning þá er það ekki mér að kenna kannski fékk ég bestu fréttir lífsmíns í dag en þú kúnni góður drullaðir yfir minn frábæra dag!!!!!!!!!!!!!!!!! ÉG BER EKKI VIRÐINGU FYRIR GAMALLI KELLINGU SEM AÐ ER Á VALDA TRIPPI Í GEGNUM LÍFIÐ. ó nei ó nei hvernig dettur þér í hug að mig langi til að bera virðingu fyrir þér ef að þú vina mín kær berð ekki virðingu fyrir mér eða mínu fólki???????????????? Eða gamall kall pungur. þetta er ekkrt persónulegt á einn eða neinn þetta er bara svona over all á fólk sem að drullar alltaf yfir "unga fólki" dissar það og heldur að það sé að valda mestum skaða í þjóðfélaginu...... LÝTTU Í SPEGILL. þá kannski gætiru mögulega séð bjálkan í auganu á þér á meðan við unga fólkið erum með flís............ (ekki alhæfing) Bara orðið of mikið af fólki sem að er að missa sig............... Annars stöðvaði Stöð 2 mig í dag og spurði hvað mér finndist um utanlandsferðir forsetans???? Mér er alveg sama greyið maðurinn er ekki með nein völd af hverju má hann ekki skella sér til kína ????? WHY?? hvað með það að hann sé að nota einkaþotur stór fyrirtækjana ????? Hvað er að mér gæti ekki verið meira sama. Hættið bara að öfundast og kúka yfir fólk sem að getur þetta........ hvað ætti hann svo sem að gera annað????????? Sitja heima og hlusta á fm...... "ég ætla að verða eins og Britney Spears ú beibí beibí".............. annars er ég hress ekki nein leiðindi hérna meginn... Fékk samt ekki bestu fréttir heimsins í dag!!! heheheeh kv PiNkY

» 4 hafa sagt sína skoðun

08.10.2007 19:58:48 / nadía

blablabla

Fór í vinnuna í dag og það var svonamega gaman!!!!! Þetta er samt orðið of auðvelt eh er ekki búin að vera þarna í viku en samt er eins og ég hafi verið þarna í gær :) Sama fólkið nákvæmlega á réttum tíma með sömu drykkina, með sama vælið og kveinið........ Af hverju þarftu alltaf að vera að væla í mér??? Ég bað þig ekki um það eða spurði þig frétta. Annars eins og fyrri daginn ekkert að frétta eða um að vera....... Stjörnubjart og kalt í gærkvöldi;) núna grenjandi rigning, allt á kafi í snjó fyrir norðan og uppskerur í hámarki á suðurlandi þetta er frekar fyndið á þessu líka litla landi... Mér finnst það alla vega. Friend´s að byrja í sjónvarpinu held að ég verði að hætta til að fara að kíkja á þá ... jájá þó að ég sé búin að sjá þetta tíu sinnum stundum er bara gott að horfa á líf annara, þó að það sé feik, og ýminda sér að sitt líf gæti verið svona hrikalega skemmtilegt................. "hvað ef" spurningin kemur alltaf upp í hugan þegar maður horfir á svona þætti. Svo langar mig alltaf að vera læknir útaf öllum læknadrama þáttunum EN ég nenni ekki að fara í skóla í milljón ár til að læra þetta ég er líka komin á tíma...... núna get ég ekki orðið lögfræðingur, læknir, eða sálfræðingur ekki nema ég verði leiðindar gellan á breytingar skeiðinu og þegar ég verð sálfræðingur og fólk fer að væla þá segi ég bara "je só" búhú cry me a river, dickface.......... Bla bla bla hef ekkert til að skrifa um, en hljómar samt svo vel. þannig að ég er farin í lögfræði með sæta lækninum Kv PiNkY

» 2 hafa sagt sína skoðun

07.10.2007 13:13:43 / nadía

Sunnudagur 7.10

Það er sunnudagur og mér leiðist gífurlega. hef ekkert að blogga um en eitthvað verð ég að gera. Það er frábært veður úti en nenni ekki í föt til að drulla mér út :( Pabbi er núna á fullu að bora súrefnis holu í skápnum mínum bara svona svo að við komum nú lifandi út á morgnana......... Ekkert opnanlegt fag þarna inni. Nadía öll að koma til hún er bara rosa hress eftir þetta allt saman. Þannig að á morgunn er "back to reality" vinna og svona hlakka reyndar barasta til að komast í vinnuna :) Búin með fullt fullt af kaffi núna í morgunn búin að lesa öll blöð sem að hafa borist í hús, Nadía situr og er að kubba já segir þetta ekki allt, hef ekkert að segja en kem fljótt aftur.................. Kv PiNkY

» 8 hafa sagt sína skoðun

05.10.2007 16:30:20 / nadía

tarammmmmmmmm!!!!!!!!!!!

ólétt!!!!!!!!!!!!!!!!!!!! WHAT???? ó nei ó nei ekki nema að það sé Jesú 2 eingetin og sendur af himnum heheheheheh en svo er ekki því að þið vitið að júdas var rauðhærður!!!!!! og ekki var hann eingetinn hann faðir minn. Rautt hár og sækópeð thats me!!!!!!!!!!!! Any who ég var sem sagt að fá nýtt starf vei vei vei ég er bara hrikalega ánægð með það, en held mér nú samt innan veggja kaffitárs bara aðeins breytt umhverfi!!!!!!!!!!!!! Fer að vinna á skrifsofunni í Ármúlanum í drakt með uppsett hárið hahahahah eða kannski ekki.... Allavega þá fékk ég stöðu aðstoðarmanns rekstrarstjóra sem að er hún Lilja mín og hlakka ég mikið til að fara að vinna með henni, Er ekki alveg 100% viss hvað ég er að fara út í en allavega er það umsjón með starfsmannamálum upp að einhverju marki vinna með kaffihúsunum og svona skemmtileg heit læt ykkur vita hvernig þetta gengur allt saman þegar líður á. En þetta er semsagt nýtt starf þannig að ég þarf aðeins að reyna að finna svona smá ramma utan um þetta auðvitað með hjálp Lilju. Hann Jan minn mun taka við mínu starfi í kringlunni allavega fram að áramótum, og ég verð viðloðin kringlunna fram að áramótum tek jólaösina og svona en verð komin alveg yfir í byrjun árs 2008 :) Ég er í skýjunum yfir þessu, fékk smá tremma í dag þegar þetta var tilkynnt en svo er þetta bara mjög spennandi verkefni sem að ég veit að ég get gert........... Until next time Glaða PiNkY kveður að sinni

» 9 hafa sagt sína skoðun

03.10.2007 10:30:09 / nadía

Spítalaferðir og skemmtileg heit

Jæja gott fólk partýið var á laugardaginn og það var mega fjör hér á bæ...... grillað brjálað gott kjöt frá "nonna litla" kartöflusalat með og fullt af sósum uuummmmm en það er nú hellings afgangur sem að var bara hent í frysti þannig að við eigum grillkjöt út árið :) vei vei vei ég elska grill mat...... Svo á sunnudaginn kom hún litla snúlla mín heim úr bústað með ömmu og afa svona líka fárveik.... Ég hélt að það væri bara svona þetta vanalega hitii og hálsbólga. Svo þegar ég kom úr sturtu og leit rétt inn á barnið þá lá hún bara þarna í einhverjum brjáluðum krömpum ooooooojjjjjj ég hef aldrei á ævinni verið jafn hrædd. Hringdi á læknavaktina bara svona til að fá eh svör hvað gæti mögulega verið í gangi og símagella sagði okkur að gefa henni bara stíl til að sjá hvort að hitinn myndi nú ekki lækka. Við gerum það en hún var nú bara með 38 gráður svo klukkutíma síðar kemur annar svona krampi og jesús marta aftur jafn ógeðslega hrædd, það var eins og barnið væri einhverstaðar annarstaðar augasteinarnir stækkuðu útí hið endanlega þannig að það var eins og hún væri með svört augu og svo starði hún bara út í loftið og kipptist öll til........ úfffff þannig að ég hringdi aftur á læknavaktina og sagðist vilja fá lækni strax. Ég hringi nú ekki í lækni af tilefnislausu og veit yfirleitt hvað er að barninu mínu en þetta var eins og í eh hryllingsmynd........................ Kom svo þessi líka frábæra læknakona svona amma rosalega næs og hún sendi okkur bara beint uppá bráðavakt á barnaspítalanum þar sem að það var farið yfir alla söguna aftur og aftur og svo tekinn púls, blóðþrýstingur og súrefnismettun og vigtun og já bara allur pakkinn.......... fórum í lungnamyndatöku en ekkert kom þar út.... svo byrjar mín að kasta upp yfir alla læknastofuna mjög hresst það. hehe...... Svo kom að því að finn æð til að taka blóðprufu þar sem að bráðarbirðar blóðprufan(stungið í puttan) sýndi eh sýkingu í blóðinu og jesús það er búið að stinga milljón göt á barnið þar sem að engar æðar er að finna í barninu, en tókst fyrir rest og hún var bara látinn fara heim með æðalegg í hendinni rosa fínt spelka undir höndina og fullt fullt af sárbindum til að þett myndi nú haldast, fékk hún svo sýklalyf í æð og þá byrjaði mín að æla aftur. Á mánudeginum fórum við aftur uppá spító og fengum meira sýklalyf og mín ældi og ældi alla stöfuna út. Eftir 3.tíma bið vorum við bara send heim og mæta aftur á þriðjudag til að fá meira sýkla lyf þar sem að hún hélt engu niðri þá þýddi nú ekkert að vera að gefa henni mixtúru. Held að við séum búin að hitta allt læknaliðið þarna á barnaspítalanum alltaf kom nýtt par af lækni og hjúkku að tala við okkur og eh vissi enginn neitt þannig að við þurftum alltaf að vera að útskýra af hverju við værum þarna iss piss.... En svo mætum við á þriðjudag og þá er bara tekið á móti okkur eins og við séum að mæta í fyrsta skipti, við reyndum nú að útskýra það að við værum nú bara að koma til að fá lyf í æð "nú jájá tilhvers" come on helduru að ég mæti hingað bara af því bara ó nei ó nei......... En svo þegar fólk var búið að fara fram og lesa skýrsluna hennar þá lagaðist þetta nú allt saman, fengum líka þennan frábæra lækni (fyrsti læknirinn sem að leyfði okkur að fylgjas með hvað væri í gangi) Hann rétt leit á hana og henti okkur inn á eh stóra stofu og skellti vökva í barnið (í æð) hún var að þorna upp!!!!!!!!!!!! Eruð þið að pæla engum datt í huga að kannski þurfit að gera eh annað en að dæla í hana syklalyfjum........... Eftir svona 20 mín var barnið eins og nýtt hún var allt í einu orðinn svöng og til í allt!!!!!!! þannig að æðaleggurinn var tekinn og skrifað uppá mixtúru og við send heim í ábyrgð heheheheh jájá svon stikklað á stóru hér......... Svo eru fleirri fréttir læt þær flakka eftir nokkra daga..................... Þarf að láta nokkra vita áður en ég blogga um það ;) KV PiNkY

» 6 hafa sagt sína skoðun

28.09.2007 16:42:51 / nadía

já sæll já fínt já sæll já fínt

Hæ hæ people........... Hvað er að frétta af ykkur???' eins og flestir vita núna þá bý ég pabba gamla og Biggi og Bjarki og kærustur líka.....Sem að er bara alveg ágætis við sofum reyndar í einum skáp örugglega bara 1,30 á breidd og 1,90 lengd svo eru nokkrar hillur þar inni og það er fataskápurinn okkar beggja....... Hresst það. Já svo er á morgunn afmælis/innfluttnings partý hjá Bigga og pabba, en ef að ykkur langar að kíkja þá er bara að hringja og boða komu sína. Grill og drykkur mega gaman það . Svo var ég að fá frábærar fréttir fyrir mig kannski ekki fyrir alla en mamma mín er að koma í bæinn, þar sem að það er ekki til fiskur þá var öllum sagt upp þar sem að hún er búin að vera að vinna. Breiðdalsvík.... krummaskuð dauðans. fór þangað í sumar og það var bara ekki mikið af fólki þarna en henni finnst æði að vera þarna. En Mamma mín á að vera hér hjá mér ekki 700.km í burtu......... Annars voðalega lítið að gerast, klippti Nadíu um daginn :( omg það er rosalegt hárið er rétt fyrir neðan axlir og mér finnst það allt of stutt, en hún vildi meira, hún var komin með hár niður á rasssssssss þannig að við erum að tala um þokklegan búka af hári á baðgólfinu sko......... Svo hætti hún að safna toppnum þannig að hún er komin með stuttan topp líka. Svo er það bara vinna og vinna meira er að vinna á morgunn þannig að allir að kíkja í kringluna......... Vei vei nema ef að þið eigið börn skiljið þau þá eftir heima heheheheheh Eitt sem að ég skil ekki af hverju er fólk alltaf að taka með sé börnin í kringluna, ÞEIM FINNST ÞAÐ EKKI GAMAN, þau vilja ekki vera að hanga í kringlunni allar helgar gerið eh uppörfandi með börnunum ykkar.!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!! until next PiNkY

» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 8
Klukkan
Heimsóknir
Í dag:  3  Alls: 32183
Könnun
þekki ég þig......
já vinnum saman
0 atkvæði

nei aldrei hitt þig
0 atkvæði

já og nei
2 atkvæði

já ég þekki þig en þú ekki mig
0 atkvæði

friend,familý,
5 atkvæði

Fan nr 1 :)
3 atkvæði

Fjöldi atkvæða: 10
mæspeisið mitt
Síðast inni
Ég var síðast inni þann 7 mars